Fyrrverandi fyrirliði Manchester City, Andy Morrison, hefur gefið jákvæða stöðuuppfærslu á heilsu sinni eftir langa baráttu við Ramsay Hunt-heilkenni, taugasjúkdóm sem hefur haft mikil áhrif á daglegt líf hans.
Morrison, sem er 56 ára gamall, greindi frá veikindunum fyrr á árinu í áhrifamiklu myndbandi þar sem hann sagðist ætla að berjast af fullum krafti. Nú hefur hann snúið aftur til starfa sem lýsandi hjá Manchester City í fyrsta sinn í rúma fimm mánuði.
„Það var frábært að vera kominn aftur. Röddin mín var orðin nógu sterk til að lýsa leik og ég naut þess virkilega,“ sagði Morrison eftir að hafa starfað við útsendingu frá undirbúningsleik Manchester City gegn Inter.
Hann sagði jafnframt að sérfræðingur sem fylgist með bata hans hefði verið afar ánægður með framfarirnar.
„Hann var mjög ánægður og jafnvel hissa á framförunum. Hann telur að innan árs geti ég aftur lokað auganu eðlilega og þurfi ekki lengur að festa það niður á næturnar,“ sagði Morrison.
Þrátt fyrir batann glímir Skotinn enn við einkenni sjúkdómsins.
„Ég þarf enn að drekka með röri, finn ekkert bragð öðru megin í munninum og sá hluti andlitsins er enn dofinn. En ef það verður versta niðurstaðan þá get ég vel sætt mig við það,“ sagði hann.
Morrison viðurkenndi að fyrstu vikurnar hefðu verið afar erfiðar.
„Ég lá í rúminu í fjórar vikur og gat ekki talað í mánuð. Ég átti mjög erfiða daga, en hélt í jákvæðnina. Allt líður hjá, hvort sem það er gott eða slæmt,“ sagði fyrrverandi fyrirliðinn.
Morrison lék 47 leiki fyrir Manchester City á árunum 1998 til 2001 og átti stóran þátt í að koma félaginu aftur upp í ensku úrvalsdeildina. Hann hefur verið sendiherra félagsins frá árinu 2013.