433

Freistast þess að fá markvörð Tottenham á láni

Mynd
Guglielmo Vicario Getty Images

Juventus hefur Guglielmo Vicario, markvörð Tottenham, efstan á óskalista sínum í leit að nýjum markverði fyrir komandi tímabil.

Samkvæmt Sky Sports á Ítalíu hyggst Juventus hefja nýjar viðræður við Tottenham og vonast til að geta fengið ítalska landsliðsmarkvörðinn á lánssamningi. Félagið telur slíka lausn henta sér best fjárhagslega.

Juventus skoðaði einnig möguleikann á að fá Zion Suzuki frá Parma, en samkeppni frá Paris Saint-Germain og hátt verð hefur gert þann kost erfiðari.

Vicario er talinn líklegur til að yfirgefa Tottenham í sumar og er ekki með liðinu í undirbúningsferð þess vegna minniháttar meiðsla.

Knattspyrnustjóri Tottenham, Roberto De Zerbi, gaf í skyn á dögunum að nokkrir leikmenn gætu fengið að fara eftir að hafa hjálpað félaginu á síðustu leiktíð.

„Ég sagði við þá: Hjálpið mér að halda liðinu uppi og svo skal ég hjálpa ykkur að fara,“ sagði De Zerbi um stöðu leikmanna sem vilja leita nýrra tækifæra.