433

Óskar Hrafn horfir með hryllingi til baka á árin í menntaskóla - „Ég sagði við börnin mín að fara ekki í MR“

Mynd

Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR mætti í vikunni í hlaðvarp til Jóns Ólafssonar þar sem hann fór yfir lífið og tilveruna. Hann ræddi fótboltann en einnig margt annað.

Óskar ólst upp Í Vesturbæ og býr þar enn í dag. Hann fór í Menntaskólann við Reykjavík en horfir ekki á þann tíma sem skemmtilegan hluta af sinni ævi.

„Það var hjarðhegðun, ég get ekki útskýrt af hverju ég fór í MR. Allir vinirnir fóru í MR," sagði Óskar Hrafn í viðtalinu við Jón Ólafsson.

Hann segir að mikil eðlisfræði og stærðfræði hafi drepið áhuga hans á námi og að hann hafi orðið latari með hvejru árinu.

„Ég var eðlisfræðibraut og útskrifaðist með herkjum, ég var fínn námsmaður. Ég varð latari og latari eftir því sem líða tók á menntaskólann.“

„Ég segi sjálfum mér það, að það hafi drepið áhugann. Ég var góður við sjálfan við mig, ég tók lítið þátt í félagslífi. Ég umgengst fótboltastrákana, gamla klíkann úr Hagaskóla. Ég tók ekki þátt í einu né neinu.“

Óskar segist hafa ráðlagt börnunum sínum að fara ekki Í MR og skilur ekki foreldra sem beina börnunum sínunm þangað.

„Ég horfi ekki á árin í menntaskóla í einhverjum bjarma, ömurlega leiðinlegur tími. Ég sagði við börnin mín að fara ekki í MR, ég skil ekki foreldra sem ýta börnunum sínum þangað.“