433

United gæti notað Rashford sem skiptimynt upp í miðjumann

Mynd
Getty Images

Manchester United skoðar nú möguleikann á að nota Marcus Rashford sem hluta af samningi til að fá franska miðjumanninn Manu Koné frá Roma.

Samkvæmt Gazzetta dello Sport metur Roma Koné á um 51 milljón punda, en Manchester United telur það verð of hátt. Ítalska félagið þarf að selja leikmenn til að uppfylla reglur um fjárhagslegt jafnvægi og gæti því verið opið fyrir lausnum sem fela í sér leikmannaskipti.

Rashford gæti hentað Roma vel þar sem félagið leitar að vinstri kantmanni. Launakostnaður Englendingsins er þó talinn stærsta hindrunin og líklegt er að aðeins lánssamningur kæmi til greina, þar sem United þyrfti að greiða hluta af launum hans.

Rashford var á láni hjá Barcelona á síðustu leiktíð, en spænska félagið nýtti ekki kauprétt sinn. Nú gæti framtíð hans legið á Ítalíu ef Manchester United tekst að ná samkomulagi við Roma um Koné, sem lék með Frakklandi á heimsmeistaramótinu.