433

Segja Liverpool búið að semja um launapakkann - Kaupverðið gæti verið erfiðara

Mynd
Bradley Barcola Getty Images

Bradley Barcola hefur samkvæmt fréttum L'Équipe náð munnlegu samkomulagi við Liverpool um félagaskipti í sumar.

Franski landsliðsmaðurinn, sem er 23 ára gamall, er sagður tilbúinn að ganga til liðs við enska meistaraliðið ef félögin ná samkomulagi um kaupverðið. Enn er þó talsvert bil á milli Liverpool og Paris Saint-Germain í viðræðunum og því er langt frá því að félagaskiptin séu í höfn.

Barcola hefur verið orðaður við Liverpool mestallt sumarið og er talinn ofarlega á óskalista félagsins. Kantmaðurinn hefur fest sig í sessi sem einn efnilegasti sóknarmaður Evrópu og lék stórt hlutverk með PSG á síðustu leiktíð.

Liverpool þarf nú að sannfæra franska stórliðið um að lækka kröfur sínar áður en hægt verður að ganga frá samningi. Takist það gæti Barcola orðið ein stærsta viðbót Liverpool fyrir komandi tímabil og styrkt sóknarlínu liðsins enn frekar.