Real Madrid hefur hafið viðræður við Manchester City um möguleg kaup á miðjumanninum Rodri.
Samkvæmt erlendum miðlum hafa félögin átt fyrstu formlegur viðræðurnar um félagaskiptin eftir að Florentino Pérez, forseti Real Madrid, gaf grænt ljós á að reyna að fá spænska landsliðsmanninn til félagsins. Áður höfðu dyrnar verið lokaðar fyrir mögulegum samningaviðræðum, en staðan virðist nú hafa breyst.
Real Madrid er sagt reiðubúið að greiða meira en 50 milljónir evra fyrir hinn 30 ára gamla miðjumann, sem hefur verið einn lykilmanna Manchester City undanfarin ár.
Rodri hefur verið einn besti varnartengiliður heims undanfarin tímabil og átti stóran þátt í velgengni City undir stjórn Pep Guardiola. Hann hefur meðal annars unnið ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu með félaginu.
Óvíst er hvort Manchester City sé tilbúið að selja einn mikilvægasta leikmann sinn, en viðræður milli félaganna eru sagðar vera komnar af stað.