Nottingham Forest er áfram meðal þeirra félaga sem hafa áhuga á að fá Liam Delap frá Chelsea í sumar, samkvæmt enskum fjölmiðlum.
Framtíð hins 22 ára gamla framherja er óljós eftir að Chelsea styrkti sóknarlínuna og er auk þess sagt vera nálægt því að fá Danny Welbeck frá Brighton.
Koma Welbeck gæti takmarkað spiltíma Delap enn frekar og því hafa nokkur félög hafið könnunarviðræður um möguleg félagaskipti.
Nottingham Forest, Everton og Newcastle United eru öll sögð fylgjast grannt með stöðu mála og hafa sýnt framherjanum áhuga.
Delap kom til Chelsea frá Ipswich Town og var áður fastamaður í U21 árs landsliði Englands.
Á sama tíma hefur Nottingham Forest lagt fram tilboð í bakvörðinn Anan Khalaili hjá Union Saint-Gilloise. Félagið heldur einnig áfram viðræðum um Givairo Read hjá Feyenoord.
Bournemouth og Newcastle eru einnig sögð hafa áhuga á bæði Khalaili og Read fyrir komandi tímabil.