433

Svona gæti Chelsea stillt upp liðinu með komu Henderson og Welbeck

Mynd
Getty Images

Chelsea virðist vera að breyta um stefnu á félagaskiptamarkaðnum og horfir nú frekar til reynslumikilla leikmanna úr ensku úrvalsdeildinni en ungra efnilegra leikmanna erlendis frá.

Samkvæmt enskum blöðum hefur félagið áhuga á að fá til sín ensku landsliðsmennina Jordan Henderson og Danny Welbeck, sem báðir eru komnir á fertugsaldurinn.

Mynd

Undanfarin ár hefur Chelsea einkum fjárfest í ungum hæfileikamönnum víðs vegar að úr heiminum. Eftir vonbrigðatímabil, þar sem liðið endaði í 10. sæti deildarinnar, virðist nýr knattspyrnustjóri, Xabi Alonso, vilja bæta meiri reynslu inn í hópinn.

Chelsea hefur þegar styrkt sig með Morgan Rogers fyrir um 117 milljónir punda og nú eru Henderson og Welbeck sagðir næstu skotmörk félagsins.

Markmiðið er að bæta við leikmönnum sem hafa mikla reynslu af því að spila á hæsta stigi og geti leiðbeint yngri leikmönnum liðsins á komandi tímabili.