433

Hafðir að háð og spotti af netverjum eftir að eldri karlar voru nefndir til sögunnar

Mynd

Chelsea hefur sætt miklu háði á samfélagsmiðlum eftir að fregnir bárust af áhuga félagsins á þeim Jordan Henderson og Danny Welbeck.

Nýr knattspyrnustjóri félagsins, Xabi Alonso, er sagður vilja bæta meiri reynslu og leiðtogahæfileikum inn í ungan leikmannahóp Chelsea. Henderson er 36 ára og Welbeck 35 ára, en félagið reyndi einnig að fá Granit Xhaka fyrr í sumar áður en þau áform runnu út í sandinn.

Mynd

Margir stuðningsmenn hafa þó hæðst að félaginu vegna aldurs leikmannanna. Ein vinsæl mynd sýndi eldri mann með textanum að um væri að ræða umboðsmann Henderson á leið í læknisskoðun hjá Chelsea.

Mynd

Aðrir birtu mynd af leikurunum Michael Caine og Morgan Freeman á rafmagnshlaupahjóli með skýringunni að þar væru Henderson og Welbeck á leið á æfingasvæðið.

Einn stuðningsmaður skrifaði að Chelsea væri að stofna „ellilífeyrisheimili“ á meðan annar grínaðist með að félagið ætti næst að reyna að fá James Milner og Bobby Zamora.

Chelsea hafnaði í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og hefur Alonso þegar fengið nokkra nýja leikmenn til félagsins í von um að snúa gengi liðsins við.