433

Everton meðvitað um áhuga frá Sádí Arabíu

Mynd

Everton hefur fengið veður af áhuga Al Hilal á kantmanninum Iliman Ndiaye, samkvæmt enskum fjölmiðlum.

Þrátt fyrir áhugann hefur sádi-arabíska félagið hvorki lagt fram formlegt tilboð né hafið viðræður við Everton um möguleg félagaskipti.

Everton hefur engan áhuga á að selja hinn 26 ára gamla Senegalann, sem er bundinn félaginu með samningi til sumarsins 2029. Ndiaye er talinn mikilvægur hlekkur í framtíðaráformum félagsins og hefur staðið sig vel síðan hann kom til Goodison Park.

Al Hilal hefur verið mjög umsvifamikið á félagaskiptamarkaðnum í sumar og styrkti nýverið sóknarlínuna með kaupum á Crysencio Summerville frá West Ham. Talið er að þau félagaskipti geti numið allt að 60 milljónum punda.

Þrátt fyrir það virðist Al Hilal enn leita að fleiri sóknarmönnum, en Everton hyggst standa fast á sínu og hefur ekki í hyggju að missa Ndiaye áður en félagaskiptaglugganum lýkur.