Arsenal er áfram orðað við brasilíska stórstjörnuna Vinicius Junior, en samkvæmt The Sun gætu félagaskiptasögurnar reynst hluti af samningatækni í viðræðum hans við Real Madrid.
Vinicius á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við spænska stórveldið og Arsenal fylgist grannt með stöðunni. Real Madrid hefur hafið viðræður við leikmanninn um nýjan langtímasamning, en samkomulag hefur enn ekki náðst.
Samkvæmt fréttinni vill nýr knattspyrnustjóri Real Madrid, José Mourinho, halda öllum sínum lykilmönnum. Ef Vinicius skrifar ekki undir nýjan samning gæti félagið hins vegar neyðst til að selja hann í sumar til að forðast að missa hann frítt að ári.
The Sun bendir þó á að stórstjörnur hafi ítrekað verið orðaðar við ensk félög áður en þær skrifuðu undir nýja og mun hærri samninga hjá núverandi félögum sínum.
Meðal þeirra eru Lionel Messi, Cristiano Ronaldo, Sergio Ramos, Gareth Bale, Neymar, Antoine Griezmann, Thomas Müller og Dani Alves, sem allir voru á sínum tíma tengdir við félög í ensku úrvalsdeildinni áður en þeir framlengdu samninga sína.
Arsenal mun því fylgjast vel með þróun mála, en vill forðast að dragast inn í langt félagaskiptadrama ef markmiðið er fyrst og fremst að knýja fram betri samning hjá Real Madrid.