Ný regla gæti tekið gildi í enskri knattspyrnu á næstu dögum í þeim tilgangi að draga úr töfum og koma í veg fyrir að markverðir noti meiðslahlé til að gefa liðsfélögum sínum taktískar leiðbeiningar.
Samkvæmt BBC hyggjast ensku dómarasamtökin (PGMOL) prófa nýtt fyrirkomulag þar sem lið þarf að senda útileikmann af velli í eina mínútu ef markvörður fær aðhlynningu inni á vellinum.
Ef liðið hefur ekki tilnefnt leikmann innan tíu sekúndna verður fyrirliðinn sjálfkrafa sendur af velli í eina mínútu.
Fram að þessu hafa markverðir mátt fá meðferð inni á vellinum án þess að yfirgefa leikvöllinn, ólíkt útileikmönnum sem þurfa almennt að fara út af eftir aðhlynningu.
Tilraunin þarf enn samþykki Alþjóðaráðs knattspyrnunnar (IFAB), en verði hún samþykkt verður hún notuð í ensku úrvalsdeildinni, EFL-deildunum, Ofurdeild kvenna og Þjóðadeildinni. Hún gæti tekið gildi strax um helgina í deildabikarnum.