433

Arsenal ætlar að setja aukinn kraft í viðræður

Mynd
Getty Images

Arsenal ætlar að auka viðræður við Newcastle United um möguleg kaup á brasilíska miðjumanninum Bruno Guimaraes, samkvæmt heimildum Daily Mirror.

Guimaraes hefur lengi verið orðaður við Arsenal, sem vill styrkja miðjuna fyrir næsta tímabil. Newcastle hefur þó tekið skýrt fram að leikmaðurinn sé ekki til sölu í sumar, sama hvaða upphæð verði boðin.

Samkvæmt umfjölluninni hafa félögin ekki enn hafið formlegar viðræður um kaupverð eða skilmála mögulegra félagaskipta. Arsenal er þó sagt reiðubúið að herða sóknina á næstu vikum og kanna hvort afstaða Newcastle geti breyst.

talkSPORT greinir jafnframt frá því að Arsenal hafi þegar náð samkomulagi við Guimaraes um persónuleg kjör. Sú fullyrðing hefur ekki verið staðfest af félögunum.

Brasilíumaðurinn hefur verið einn mikilvægasti leikmaður Newcastle undanfarin ár og því ljóst að Arsenal þyrfti að leggja fram mjög hátt tilboð til að freista þess að fá hann til Lundúna.