Manchester United hefur gengið frá samningum við markvörðinn Kit Margetson frá Swansea, en félagið staðfesti félagaskiptin í dag.
Margetson er 19 ára gamall og þykir efnilegur markvörður. Hann náði aldrei að spila með aðalliði Swansea en var á láni hjá Connah's Quay Nomads í efstu deild Wales á síðasta tímabili. Þar stóð hann sig vel og hélt markinu hreinu í tíu af 34 leikjum sínum.
Markvörðurinn hefur einnig verið fastamaður í yngri landsliðum Wales og lék sinn fyrsta leik með U21 árs landsliðinu gegn Hvíta-Rússlandi í mars.
Kit er sonur Martyn Margetson, fyrrverandi landsliðsmarkvarðar Wales og markvarðaþjálfara sem starfað hefur hjá meðal annars Crystal Palace, Cardiff City og enska landsliðinu.
Manchester United og Swansea hafa komist að samkomulagi um bætur vegna félagaskiptanna og verður Margetson formlega skráður leikmaður United þegar öll nauðsynleg skjöl hafa verið afgreidd.