Inter Mílanó hefur staðfest að félagið sé komið í viðræður við Tottenham um möguleg kaup á argentínska varnarmanninum Cristian Romero.
Romero, sem er fyrirliði Tottenham, hefur verið einn af lykilmönnum liðsins undanfarin ár og vakti einnig athygli með frammistöðu sinni fyrir Argentínu, sem tryggði sér sæti í úrslitaleik HM annað mótið í röð fyrr í þessum mánuði.
Piero Ausilio, yfirmaður knattspyrnumála hjá Inter, staðfesti áhuga félagsins í samtali við Sky Italia.
„Þetta eru klárlega viðræður sem við erum að reyna að klára, bæði við leikmanninn og félagið. Svona samningar taka tíma, en áhuginn er sannarlega til staðar. Nú verðum við að sjá hvað gerist,“ sagði Ausilio.
Samkvæmt enskum miðlum er Tottenham tilbúið að selja Romero í sumar, en aðeins gegn háu kaupverði. Varnarmaðurinn hefur verið hjá Lundúnaliðinu í fimm ár og er enn talinn einn besti miðvörður ensku úrvalsdeildarinnar, sem gerir samningaviðræðurnar flóknar fyrir Inter.