433

Segir metnaðinn leka af öllu sem ger hefur verið í sumar

Mynd
Getty Images

Micky van de Ven segir að nýr metnaður ríki hjá Tottenham eftir umfangsmiklar breytingar hjá félaginu í sumar og telur liðið eiga að berjast um Evrópusæti á komandi tímabili.

Tottenham eyddi alls um 237 milljónum punda í leikmannakaup eftir erfitt tímabil þar sem liðið slapp naumlega við fall úr ensku úrvalsdeildinni. Roberto De Zerbi tók við sem knattspyrnustjóri og félagið hefur meðal annars keypt Mateus Fernandes og Sandro Tonali fyrir metupphæðir.

„Það er mjög jákvætt að sjá breytingarnar sem félagið hefur gert. Við erum komnir með frábæran nýjan stjóra og mjög sterka nýja leikmenn. Það sést að félagið hefur nýjan metnað,“ sagði Van de Ven.

Hollenski varnarmaðurinn segir markmiðið skýrt.

„Tottenham á að spila í Evrópukeppni á hverju ári. Evrópusætin eru því það sem við stefnum á. Mikilvægast er að við spilum okkar fótbolta og verðum lið sem erfitt er að mæta,“ sagði Van de Ven.