Paris Saint-Germain hefur ekki í hyggju að gera tilraun til að kaupa spænska miðjumanninn Rodri frá Manchester City í sumar, samkvæmt upplýsingum Sky Sports.
Undanfarna daga hafa verið uppi sögusagnir um að Evrópumeistararnir hefðu áhuga á að fá Rodri til liðs við sig, en þær reynast ekki eiga við rök að styðjast. PSG er ánægt með þá Vitinha, Fabián Ruiz og João Neves, sem skipuðu miðjuna í sigri liðsins í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Manchester City vill halda í Rodri, sem á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið. Forráðamenn enska liðsins vonast til að ná samkomulagi við hann um nýjan samning á næstu mánuðum.
Rodri glímir nú við meiðsli eftir minniháttar aðgerð á baki og er talið að hann missi af fyrstu leikjum tímabilsins á meðan hann nær sér.
Real Madrid hefur hins vegar áfram mikinn áhuga á miðjumanninum til lengri tíma litið.