Chelsea hefur ekki gefist upp á voninni um að fá Alex Scott frá Bournemouth og er að íhuga að leggja fram nýtt tilboð í enska miðjumanninn.
Samkvæmt Florian Plettenberg var opnunartilboð Chelsea upp á 64 milljónir punda hafnað, en Bournemouth hefur engan áhuga á að missa 22 ára gamla leikmanninn og vill halda honum innan sinna raða.
Scott er þó eftirsóttur á félagaskiptamarkaðnum og Chelsea er ekki eina félagið sem fylgist grannt með stöðu hans. Fleiri lið hafa sýnt honum áhuga, þó ekki hafi verið greint frá því hvaða félög það eru.
Miðjumaðurinn hefur notið mikillar virðingar meðal þjálfara síðustu ár. Pep Guardiola hefur áður lýst honum sem „ótrúlegum leikmanni“ og Thomas Tuchel er einnig sagður vera mikill aðdáandi hans.
Óvíst er hvort Chelsea muni snúa aftur með hærra tilboð á næstu dögum, en félagið virðist staðráðið í að reyna að fá Scott til Stamford Bridge fyrir lok félagaskiptagluggans.