Al-Nassr stendur frammi fyrir miklum fjárhagsvanda þrátt fyrir að hafa orðið meistari í Sádi-Arabíu á síðasta tímabili.
Samkvæmt miðlinum Al-Riyadiah nemur skuldastaða félagsins um 800 milljónum riyala, eða um 160 milljónum punda. Skuldirnar eru sagðar hafa orðið til vegna fjárhagslegra ákvarðana sem teknar voru á síðasta tímabili.
Í kjölfarið hefur opinberi fjárfestingarsjóður Sádi-Arabíu (PIF), sem á Al-Nassr ásamt fleiri stórliðum landsins, bannað félaginu að kaupa nýja leikmenn nema nægjanlegt fjármagn komi inn með styrktarsamningum eða öðrum tekjum.
Þetta gæti sett strik í reikninginn hjá Ange Postecoglou, sem tók nýverið við sem þjálfari Al-Nassr og gæti þurft að sætta sig við takmarkað svigrúm á félagaskiptamarkaðnum.
Cristiano Ronaldo er einnig sagður hafa verið afar ósáttur þegar fyrrverandi samherji hans hjá Real Madrid, Karim Benzema, var seldur frá Al-Ittihad til Al-Hilal í stað Al-Nassr á meðan barist var um meistaratitilinn. Samkvæmt fréttum mótmælti Portúgalinn ákvörðuninni og neitaði um tíma að æfa með liðinu áður en hann sneri aftur.
Nú vinna stjórnendur PIF að áætlun sem á að bæta fjárhagsstöðu Al-Nassr. Meðal annars verður sjálfstætt ráðgjafarfyrirtæki fengið til að auka tekjur félagsins og herða eftirlit með fjármálum þess.