433

Ajax að taka framherjann sem mátti ekki mæta á æfingar og gerði allt vitlaust

Mynd

Ajax er nálægt því að ganga frá samningi við nígeríska framherjann Tolu Arokodare frá Wolves, samkvæmt enskum fjölmiðlum.

Félögin hafa náð samkomulagi um eins árs lánssamning þar sem Ajax fær forkaupsrétt á leikmanninum fyrir 17 milljónir punda. Arokodare mun gangast undir læknisskoðun hjá hollenska stórveldinu á morgun.

Wolves fær eina milljón punda í lánsgjald og Ajax mun greiða öll laun framherjans á lánstímanum. Þá eru einnig ákvæði um bónusgreiðslur ef Ajax tryggir sér sæti í deildarkeppni Evrópukeppni.

Arokodare hefur viljað yfirgefa Wolves í sumar og var nýlega í sviðsljósinu eftir að hafa að sögn neitað að yfirgefa æfingavöll félagsins, sem leiddi til þess að æfingu var aflýst.

Leikmaðurinn hafnaði þó þeirri gagnrýni á samfélagsmiðlum og sagði eina markmið sitt hafa verið að sinna skyldum sínum af fagmennsku. Wolves hafði áður hafnað tilboðum frá Fiorentina og Trabzonspor í framherjann.