Lionel Messi kom samherjum sínum í argentínska landsliðinu á óvart með persónulegum gjöfum eftir heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum, samkvæmt færslu sem Kelci-Rose Bowers, kærasta Marcos Senesi, birti á TikTok.
Bowers sýndi þar gjafapakka sem Senesi fékk í landsliðsbúðunum. Þar var meðal annars sérmerkt taska fyrir mate-drykk, skreytt nafni leikmannsins ásamt merki argentínska knattspyrnusambandsins og HM.
Auk töskunnar fékk hver leikmaður gullitaðan Stanley-brúsa með merki Messi, sérstakt drykkjarílát fyrir mate, bombilla-sogrör og yerba mate-jurtir til drykkjarins, sem nýtur mikilla vinsælda í Suður-Ameríku.
Bowers sagði gjöfina afar skemmtilega og upplýsti að Senesi hefði beðið hana um að geyma hana örugglega og taka hana með sér til Miami.
Argentína hafnaði í öðru sæti á heimsmeistaramótinu eftir tap gegn Spáni í úrslitaleiknum í New York. Messi og félagar náðu ekki að verja heimsmeistaratitilinn sem þeir unnu árið 2022, en fyrirliðinn virðist engu að síður hafa viljað þakka samherjum sínum fyrir sameiginlegt ferðalag með þessum persónulegu gjöfum.
Kelci er sjálf knattspyrnukona og lék síðast með Bournemouth líkt og Sensei en hann er farin til Tottenham og hún er án félags.