433

United á fullu í samtali við franska landsliðsmanninn

Mynd
Getty Images

Manchester United hefur átt viðræður við fulltrúa Manu Koné, miðjumanns Roma, en enn hefur ekkert samkomulag náðst við ítalska félagið um möguleg félagaskipti.

Koné, sem er 25 ára gamall og lék fimm leiki fyrir Frakkland á heimsmeistaramótinu, hefur áhuga á að færa sig yfir í ensku úrvalsdeildina. United leitar að auknum krafti á miðsvæðinu og hefur skoðað nokkra mögulega kosti síðustu vikur.

Patrick Vieira, fyrrverandi landsliðsmaður Frakklands og Arsenal, hrósaði Koné í hástert í sjónvarpsútsendingu ITV á heimsmeistaramótinu.

„Að mínu mati er hann besti miðjumaður Frakklands í dag. Hann hefur mikla hreyfigetu, vinnur boltann vel og er jafnframt mjög sterkur í uppspili og getur brotið upp varnir með sendingum sínum,“ sagði Vieira.

United hefur þegar styrkt miðjuna í sumar með komu Andrey Santos og Youri Tielemans, en félagið vill bæta við þriðja miðjumanninum. Verðið verður þó lykilatriði áður en ákvörðun verður tekin um næstu kaup.