Þótt Spánn hafi staðið uppi sem heimsmeistari er talið að David Beckham hafi verið einn stærsti sigurvegari mótsins utan vallar.
Samkvæmt mati markaðssérfræðinga þénaði fyrrverandi fyrirliði enska landsliðsins um 19 milljónir punda, jafnvirði rúmlega 3,8 milljarða íslenskra króna, fyrir auglýsingasamninga sem birtust í sjónvarpsútsendingum á heimsmeistaramótinu.
Beckham, sem er meðeigandi Inter Miami, sást í auglýsingum fyrir fjölda stórfyrirtækja, meðal annars Bank of America, Lay's, Home Depot, McDonald's, Stella Artois og Adidas. Vegna fjölgunar auglýsingahléa á mótinu birtist hann reglulega á skjánum á meðan leikjum stóð.
Markaðssérfræðingurinn Nick Ede segir heimsmeistaramótið vera eitt verðmætasta auglýsingapláss heims.
„Fyrirtæki eru tilbúin að greiða tugmilljónir punda fyrir heimsþekkt andlit sem ná athygli áhorfenda. Áhorfendahópurinn telur milljarða og því geta slíkir samningar skilað gríðarlegum árangri,“ sagði Ede.
Beckham og eiginkona hans, Victoria Beckham, eru meðal auðugustu stjörnuhjóna Bretlands og samanlagt er eignasafn þeirra metið á um 1,185 milljarða punda.
Áætlaðar tekjur af auglýsingum á heimsmeistaramótinu:
- David Beckham – 19 milljónir punda
- Shakira – 15 milljónir punda
- Justin Bieber – 12 milljónir punda
- Timothée Chalamet – 12 milljónir punda
- Lisa – 9 milljónir punda
- Kim Kardashian – 8 milljónir punda
- Madonna – 4 milljónir punda
- Brooklyn Beckham – 1 milljón punda
- Susan Boyle – 500 þúsund pund