433

Systir ofbeldismannsins tjáir sig - „Við eigum Falklandseyjar“

Mynd

Bárbara Paredes, systir argentínska landsliðsmannsins Leandro Paredes, hefur vakið mikla athygli eftir ummæli sem hún lét falla skömmu eftir tap Argentínu gegn Spáni í úrslitaleik heimsmeistaramótsins.

Argentína missti af tækifærinu til að verja heimsmeistaratitil sinn þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Spánverjum eftir framlengdan leik. Að leik loknum ræddi Bárbara við fjölmiðla eftir heimkomuna til Buenos Aires og vísaði þar til Falklandseyja, sem hafa lengi verið bitbein Breta og Argentínumanna.

Lenadro Parades er mikið í fréttum eftir leikinn eftir að hann fór að berja mann og annan að leik loknum.

„Við erum öll ánægð. Til að vera hreinskilin bjuggumst við ekki við að komast svona langt og sigurinn á Englandi skipti okkur gríðarlegu máli. Við fengum kannski ekki þriðju eða fjórðu stjörnuna, en við eigum Falklandseyjar,“ sagði hún.

Ummælin hafa vakið hörð viðbrögð, enda eru Falklandseyjar breskt sjálfstjórnarsvæði og deila ríkjanna um yfirráð eyjanna hefur staðið yfir áratugum saman. Árið 1982 brutust út Falklandseyjastríðið þegar argentínski herinn réðst inn á eyjarnar, en Bretar náðu þeim aftur á sitt vald eftir tíu vikna átök.

Deilan var einnig áberandi á heimsmeistaramótinu. Argentínskir leikmenn sungu meðal annars níðvísur um England á mótinu og fögnuðu sigri sínum á Englendingum í undanúrslitum með borða sem vísaði til kröfu Argentínu um yfirráð yfir eyjunum.