Aston Villa hefur lagt fram formlegt tilboð í Alejandro Garnacho, kantmann Chelsea, samkvæmt félagaskiptafréttamanninum Fabrizio Romano.
Viðræður milli félaganna hófust á föstudag og nú hefur Villa stigið næsta skref með opinberu tilboði. Um er að ræða lánssamning með kauprétti, en Unai Emery, knattspyrnustjóri Aston Villa, hefur samþykkt Garnacho sem eitt af helstu skotmörkum félagsins í félagaskiptaglugganum.
Samhliða viðræðum félaganna eru einnig í gangi viðræður við fulltrúa leikmannsins um möguleg félagaskipti. Chelsea keypti Garnacho frá Manchester United fyrir ári síðan en nú vilja þeir hann burt.
Garnacho er talinn vilja fá stærra hlutverk en hann hefur fengið undanfarið og Aston Villa sér í honum leikmann sem gæti styrkt sóknarleik liðsins fyrir komandi tímabil.
Enn á eftir að ná endanlegu samkomulagi milli allra aðila, en viðræður halda áfram og Aston Villa virðist staðráðið í að tryggja sér þjónustu argentínska landsliðsmannsins áður en félagaskiptaglugganum lýkur.