433

Ronaldo tekur undir samsæriskenningar í garð FIFA á Instagram

Mynd
Getty Images

Cristiano Ronaldo hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum eftir að hafa líkað við Instagram-færslu þar sem Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, var harðlega gagnrýnt í kjölfar heimsmeistaramótsins.

Í færslunni var vitnað í spænsku blaðamennina Pilar Rodrigues Losantos og Ruben Amon, sem ræddu um mótið í sjónvarpsþættinum Espejo Público. Þar hélt Losantos því fram að Argentína hefði notið aðstoðar FIFA á leið sinni í úrslitaleikinn og sagði sambandið vera „eina spilltustu stofnun heims“.

Amon tók í svipaðan streng og sagði FIFA vera „viðbjóðslega, mafíukennda og skammarlega stofnun“. Hann gagnrýndi einnig síhækkandi miðaverð og taldi knattspyrnuna vera að fjarlægjast almenning.

Mynd

Ronaldo, sem féll úr leik með Portúgal gegn Spáni í 16-liða úrslitum, líkaði við færsluna. Rétt er þó að benda á að „like“ á samfélagsmiðlum þarf ekki endilega að þýða að viðkomandi sé sammála öllu efni hennar.

Á heimsmeistaramótinu var FIFA gagnrýnt úr ýmsum áttum og meðal annars komu fram vangaveltur um að Argentína hefði notið hagstæðra dóma á leið sinni í úrslitaleikinn. Í úrslitaleiknum vann Spánn 1:0 eftir framlengingu með marki Ferran Torres, en Argentína endaði leikinn manni færri eftir að Enzo Fernández var rekinn af velli undir lok venjulegs leiktíma.