433

Hafnar nýjum samningi og stórliðin bíða í röðum og vilja hann

Mynd
Alex Scott Getty Images

Alex Scott, miðjumaður Bournemouth, hefur hafnað tilboði félagsins um nýjan samning en núverandi samningur hans gildir til sumarsins 2028.

Bournemouth lagði fram nýtt samningstilboð í mars en samkvæmt enskum fjölmiðlum hefur 22 ára gamli Englendingurinn ákveðið að skrifa ekki undir að svo stöddu. Þrátt fyrir það hefur félagið enga áform um að selja hann í sumar.

Arsenal, Chelsea og Manchester United hafa öll sýnt Scott áhuga, en Bournemouth hefur ekki sett verðmiða á leikmanninn þar sem hann er einfaldlega ekki til sölu. Nýr knattspyrnustjóri félagsins, Marco Rose, sagðist nýlega sannfærður um að Scott yrði áfram hjá félaginu fyrir Evrópudeildarverkefnið á komandi tímabili.

Scott lék 39 leiki á síðustu leiktíð og átti stóran þátt í að Bournemouth tryggði sér Evrópusæti í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Manchester United hefur verið orðað við Scott, en talið er að félagið þyrfti að greiða allt að 80 milljónir punda fyrir miðjumanninn, sem gæti reynst erfitt nema leikmenn verði seldir fyrst.