Myndband frá farþegaflugi hefur farið eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum eftir að spænskur flugmaður virtist plata farþega til að halda að Argentína hefði orðið heimsmeistari.
Atvikið átti sér stað skömmu eftir að Spánn lagði Argentínu að velli, 1:0 eftir framlengingu, í úrslitaleik heimsmeistaramótsins. Ferran Torres skoraði sigurmarkið á 106. mínútu og tryggði Spánverjum heimsmeistaratitilinn.
Í myndbandinu heyrist flugmaðurinn ávarpa farþega yfir hátalarakerfi vélarinnar. Hann sagði að úrslitaleikurinn hefði verið gríðarlega jafn og að bæði lið hefðu lagt allt í sölurnar, en aðeins eitt þeirra gæti orðið heimsmeistari.
This is so mean 🤣 😭
A Spanish pilot tricked the argentinian fans by telling them they won the World Cup against Spain 🫣
( Via williermina / TT ) pic.twitter.com/WhGWyxR0O9— OddsPlaysUS (@OddsPlaysUS) July 21, 2026
Því næst sagði hann. „Við viljum óska argentínskum vinum okkar til hamingju.“
Margir farþeganna, sem klæddust treyjum argentínska landsliðsins, brutust þá út í fagnaðarlæti og fögnuðu hástöfum. Nokkrum sekúndum síðar bætti flugmaðurinn hins vegar við: „Spánn hefur unnið.“
Við það þagnaði vélin samstundis og gleðin breyttist í vonbrigði.
Myndbandið hefur farið víða á samfélagsmiðlum, en argentínskir fjölmiðlar tóku gríninu misvel. Sumir kölluðu uppátækið „sjúkan brandara“ og sögðu óviðeigandi að gera grín að stuðningsmönnum sem væru nýbúnir að upplifa sársaukafullan ósigur í úrslitaleiknum.