433

Einn af eigendum Chelsea í vanda - Rannsókn fer fram sem FBI kemur að

Mynd
Trump með liði Chelsea Getty Images

Bandarísk yfirvöld hafa hafið rannsókn á tveimur tryggingafélögum sem tengjast fjárfestinum Mark Walter, einum eigenda Chelsea og eiganda Los Angeles Lakers og Los Angeles Dodgers.

Samkvæmt Bloomberg og Financial Times hafa saksóknarar í New York og bandaríska verðbréfaeftirlitið (SEC) sent stefnu á tryggingafélögin Delaware Life Insurance Company og Clear Spring Life and Annuity Company. Rannsóknin snýr meðal annars að því hvort félögin hafi veitt fullnægjandi upplýsingar um eignir sem tengjast öðrum fyrirtækjum í viðskiptasamstæðu Walters.

Bloomberg greinir jafnframt frá því að alríkislögreglan FBI hafi framkvæmt að minnsta kosti eina húsleit þar sem farsími var haldlagður vegna rannsóknarinnar.

Í yfirlýsingu frá eignarhaldsfélagi Walters, TWG Global, kemur fram að félagið sé meðvitað um rannsóknina og vinni með yfirvöldum.

Mark Walter er forstjóri fjárfestingafélagsins Guggenheim Partners og hefur byggt upp eitt áhrifamesta eignasafn í íþróttaheiminum. Hann er meðal annars meðeigandi Chelsea og hefur komið að stórum yfirtökum á borð við kaup á Los Angeles Dodgers árið 2012.