433

Afturelding í úrslit eftir dramatískan sigur í Árbænum

Mynd

Afturelding tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik Mjólkurbikars karla eftir dramatískan 5:4-sigur á Fylki í vítaspyrnukeppni eftir að staðan hafði verið 1-1 að loknum framlengdum leik.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Tumi Fannar Gunnarsson Fylki yfir snemma í þeim síðari. Sjálfsmark Hlyns Sævars Jónssonar jafnaði metin fyrir Aftureldingu 25. mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma. Ekkert var skorað í framleningunni og fór leikurinn því í vítaspyrnukeppni. 

Þar var spennan gríðarleg. Bæði lið fóru illa með nokkrar spyrnur en að lokum skoraði Axel Óskar Andrésson úr úrslitaspyrnu Aftureldingar. Dagur Traustason fékk síðan tækifæri til að jafna fyrir Fylki en spyrnan var varin og þar með var sigur Mosfellinga staðreynd.

Afturelding mætir því Breiðabliki í úrslitaleik Mjólkurbikarsins og á möguleika á að vinna bikarmeistaratitilinn í fyrsta sinn í sögu félagsins.