433

West Ham hafnar tilboði og biðja um meiri pening

Mynd
Getty Images

West Ham hefur hafnað tilboði Roma í hollenska kantmanninn Crysencio Summerville, samkvæmt upplýsingum Sky Sports.

Ítalska félagið bauð 39 milljónir punda, jafnvirði um 46 milljóna evra, í hinn 24 ára gamla sóknarmann en það dugði ekki til. Talið er að West Ham meti Summerville hærra og hafi enn ekki fengið tilboð sem uppfyllir verðkröfur félagsins.

Þrátt fyrir höfnunina er ekki útilokað að Roma snúi aftur með hærra tilboð á næstu dögum. Viðræður milli félaganna eru sagðar halda áfram og vonast Roma til að ná samkomulagi áður en félagaskiptaglugganum lýkur.

Summerville er einnig á radar fleiri félaga og gæti því orðið eftirsóttur á lokakafla gluggans.

Hollendingurinn gekk til liðs við West Ham fyrir síðasta tímabil og hefur vakið athygli með hraða sínum, leikni og sóknarhæfileikum. Félagið virðist því ekki tilbúið að láta hann fara nema rétt verð fáist fyrir hann.