433

Varalesari uppljóstrar því hvað var sagt í rifrildi parsins - Konan buguð

Mynd

Rifrildi pars í stúkunni á leik Suður-Afríku og Suður-Kóreu á heimsmeistaramótinu hefur farið eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum.

Myndavélar sýndu konu biðja manninn við hlið sér um að leggja símann frá sér á meðan hún veifaði fána Suður-Afríku. Konan virtist greinilega ósátt og gerði maðurinn stöðuna enn vandræðalegri þegar hann gaf annarri konu síðasta matarbitann sinn.

Atvikið vakti mikla athygli og ýmsir notendur á X létu skoðanir sínar í ljós. Einn spurði í gríni hvernig hann gæti sótt um skilnað fyrir einhvern annan, á meðan aðrir sögðu gleði konunnar hafa horfið á augabragði.

Varalesarinn Nicola Hickling reyndi síðar að ráða í hvað parið sagði. Samkvæmt henni sagði maðurinn að ekkert væri að sjá í símanum og að vinir hans hefðu tekið myndir og sent þær.

Konan er sögð hafa spurt hvers vegna hann væri að horfa, en maðurinn svarað að hann væri ekki að horfa á aðrar konur. Rifrildið hélt áfram og Hickling telur að maðurinn hafi sagt henni að þegja.

Konan svaraði þá að hún væri orðin þreytt á stöðugum rifrildum þeirra.

Ekki er hægt að staðfesta nákvæmlega hvað var sagt, en augnablikið varð engu að síður eitt það umtalaðasta úr stúkunni.

Suður-Afríka vann leikinn 1-0 og tryggði sér sæti í útsláttarkeppni HM í fyrsta sinn.