433

Uppljóstrað um orðin sex sem Trump sagði aftur og aftur í gærkvöldi

Mynd
Donald Trump - Lionel Messi - Infantino Getty Images

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, afhenti verðlaun eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins þar sem Spánn tryggði sér heimsmeistaratitilinn með sigri á Argentínu.

Trump steig inn á völlinn ásamt forseta FIFA, Gianni Infantino, og afhenti argentínsku leikmönnunum silfurverðlaun áður en spænska liðið tók við bikarnum. Einnig voru forsætisráðherrar Kanada og Mexíkó viðstaddir athöfnina, en athygli flestra beindist að samskiptum Trump við leikmennina.

Samkvæmt varalesaranum Nicola Hickling var Trump með sama skilaboð til nær allra leikmannanna. Hún segir hann hafa tekið í hönd þeirra og endurtekið setningarnar: „Þú ert meistari“ og „Frábær leikmaður.“

Á enskri tungu notaði hann því sex orð við nánast hvern einasta leikmanni.

Cristian Romero, varnarmaður Argentínu, vakti þó athygli þegar hann virtist ganga fram hjá Trump án þess að taka í hönd hans eftir að hafa fengið silfurverðlaunin frá Infantino.

Þegar kom að því að afhenda Spánverjum heimsmeistarabikarinn var Trump einnig áberandi. Hann stóð áfram með bikarinn ásamt Infantino þegar spænsku leikmennirnir fögnuðu sigrinum og lét ekki strax af sviðinu, sem vakti nokkra athygli meðal áhorfenda og á samfélagsmiðlum eftir leikinn.