433

United staðfestir komu efnilegs leikmanns - Kemur frá Tottenham

Mynd

Manchester United hefur gengið frá samningi við hinn 18 ára gamla kantmanni Tynan Thompson frá Tottenham, með fyrirvara um skráningu samningsins.

Thompson er talinn einn efnilegasti leikmaður sinnar kynslóðar hjá Spurs og átti afar gott tímabil með U18-liði félagsins á síðustu leiktíð. Hann skoraði 13 mörk og lagði auk þess upp sex til viðbótar.

Þrátt fyrir ungan aldur var Thompson þrisvar sinnum valinn í leikmannahóp aðalliðs Tottenham á síðasta tímabili. Hann sat meðal annars á varamannabekknum í leikjum gegn Paris Saint-Germain og Borussia Dortmund í Meistaradeild Evrópu, þó hann hafi ekki komið við sögu.

United heldur áfram að styrkja raðir sínar með ungum og efnilegum leikmönnum og bindur vonir við að Thompson geti þróast í lykilleikmann á komandi árum.