433

Tveir kostir á borðinu - Ef Martinez kemur ekki ætla þeir í De Gea

Mynd

Juventus hefur sett markvörð Aston Villa, Emiliano Martínez, efst á óskalista sinn fyrir komandi tímabil, samkvæmt ítalska miðlinum Calciomercato.

Argentínski landsliðsmarkvörðurinn, sem er 33 ára gamall, hefur verið einn besti markvörður ensku úrvalsdeildarinnar undanfarin ár og átt stóran þátt í velgengni Aston Villa undir stjórn Unai Emery. Frammistaða hans hefur nú vakið áhuga ítalska stórliðsins sem leitar að nýjum aðalmarkverði.

Takist Juventus ekki að fá Martínez er félagið einnig sagt fylgjast grannt með David de Gea. Spánverjinn, sem er 35 ára, hefur endurvakið feril sinn hjá Fiorentina og komið sér aftur á radar stærri félaga með sterkri spilamennsku á Ítalíu.

Ekki liggur fyrir hvort Aston Villa sé tilbúið að selja Martínez, sem er talinn einn mikilvægasti leikmaður liðsins. Juventus mun því þurfa að sannfæra enska félagið með öflugu tilboði ef það ætlar að landa argentínska markverðinum í sumar.