433

Skammar Messi eftir þetta atvik í gær - „Leiðinlegt að sjá svona hegðun“

Mynd

Wayne Rooney gagnrýndi Lionel Messi harðlega eftir tap Argentínu gegn Spáni í úrslitaleik heimsmeistaramótsins.

Mikil hiti færðist í leikinn undir lok hans og leikmenn liðanna lentu í átökum eftir að Enzo Fernández fékk rautt spjald fyrir brot á Pau Cubarsí. Í kjölfarið sást Messi eiga orðaskipti við Marc Cucurella áður en hann benti í átt að spænska varnarmanninum í því sem virtist vera tilraun til að fá dómarann til að grípa inn í.

Rooney var ósáttur við framkomu argentínska fyrirliðans og sagði í útsendingu BBC Sport að um örvæntingu hefði verið að ræða.

„Þetta er örvænting. Argentína spilar svona og við vitum það, en maður vill sjá góða íþróttamennsku. Það var leiðinlegt að sjá Lionel Messi haga sér svona,“ sagði Rooney.

Joe Hart tók í sama streng og taldi atvikið sýna hversu mikla yfirburði Spánverjar hefðu haft í leiknum. Hann sagðist ekki hafa notið þess að sjá hegðun Messi undir lok úrslitaleiksins.