433

Liverpool staðfestir nýjan mann í teymið hjá Iraola

Mynd

Liverpool hefur ráðið Alejandro Rosalen sem nýjan markvarðaþjálfara aðalliðsins.

Hinn 49 ára gamli Spánverji gengur til liðs við þjálfarateymi Andoni Iraola og tekur við starfinu af Xavi Valero, sem hefur yfirgefið félagið eftir sitt annað tímabil hjá Liverpool á leiktíðinni 2025-26.

Rosalen kemur til Merseyside með mikla reynslu í farteskinu. Hann starfaði síðast hjá Napoli í ítölsku A-deildinni frá árinu 2021 og fram á þetta sumar.

Á þeim tíma varð Napoli tvisvar ítalskur meistari, tímabilin 2022-23 og 2024-25, og átti Rosalen sinn þátt í þeim árangri sem hluti af þjálfarateymi félagsins.

Áður hafði hann starfað í átta ár hjá Fiorentina. Þar á undan var hann í eina leiktíð hjá ungverska félaginu Videoton.

Rosalen hóf þjálfaraferil sinn hjá akademíu Valencia þar sem hann starfaði í átta ár áður en hann hélt út í atvinnumennsku erlendis.