433

Launapakkinn að verða til þess að United getur ekki losnað við hann

Mynd
Getty Images

Marcus Rashford er sagður vera að íhuga næstu skref á ferli sínum eftir lánsdvöl hjá Barcelona og sterka frammistöðu með enska landsliðinu á heimsmeistaramótinu.

Samkvæmt BBC rann frestur til varanlegra félagaskipta út án þess að félög gerðu alvöru tilraun til að fá framherjann í sínar raðir. Rashford er samningsbundinn Manchester United til ársins 2028 og fær um 325 þúsund pund í vikulaun, sem hefur takmarkað möguleika margra félaga á að semja við hann.

Framherjinn á nú að mæta aftur til æfinga hjá Manchester United fyrir undirbúning nýs tímabils. Sagt er að samband hans við knattspyrnustjórann Michael Carrick sé mun betra en áður, sem gæti aukið líkurnar á að hann verði áfram á Old Trafford.

Þrátt fyrir að framtíð Rashford sé enn óljós er talið líklegast að hann verði áfram hjá Manchester United þegar félagaskiptaglugganum lýkur 1. september.