433

Konan alveg tryllt í hann eftir breytingar á útliti hans - Svona fór hann að

Mynd
Rooney í útsendingu í gær frá úrslitaleik HM.

Wayne Rooney vakti mikla athygli sem sérfræðingur hjá BBC á heimsmeistaramótinu, ekki aðeins fyrir hreinskilnar greiningar sínar heldur einnig fyrir gjörbreytt útlit.

Fyrrverandi fyrirliði enska landsliðsins og Manchester United þótti standa sig vel í sjónvarpsþáttunum og margir áhorfendur hrósuðu honum fyrir einlæga framkomu og öryggi fyrir framan myndavélarnar. Rooney virtist jafnframt í betra formi en áður og mætti til leiks í glæsilegum jakkafötum með nýja hárgreiðslu og snyrtilegt skegg.

Í lokasendingu BBC eftir úrslitaleikinn hrósaði Micah Richards samstarfsmanni sínum sérstaklega. Hann benti meðal annars á að Rooney hefði ekki drukkið áfengi á meðan á fimm vikna heimsmeistaramótinu stóð og spurði hvort hann hygðist fagna að mótinu loknu.

 

Mynd

„Ég mun auðvitað njóta kvöldsins,“ svaraði Rooney og brosti.

Richards lét ekki þar við sitja og sagði Rooney líta „frábærlega út“, hrósaði hárinu, fatastílnum og sjálfstraustinu sem hann hefði sýnt í gegnum allt mótið.

Samkvæmt frétt The Sun á eiginkona hans, Coleen Rooney, stóran þátt í breytingunni. Hún hafi hjálpað honum að breyta lífsstílnum fyrir heimsmeistaramótið með sérstöku mataræði og reglulegri hreyfingu.

Ensk blöð segja eiginkonuna alveg vitlausa í hann núna eftir að hann léttist og fór að drekka minna.

Rooney er sagður hafa nýtt líkamsræktaraðstöðu heimilisins, fengið aðstoð einkaþjálfara og farið í ýmsar snyrtimeðferðir áður en hann hóf störf hjá BBC. Þá hafi nýr fataskápur einnig verið hluti af undirbúningnum.

Útlitsbreytingin og frammistaða Rooney á skjánum hafa vakið jákvæð viðbrögð og margir telja að hann hafi fest sig í sessi sem einn af sterkustu knattspyrnusérfræðingum breska ríkissjónvarpsins.