433

Kevin Keegan látin eftir að hafa barist við krabbamein

Mynd
Getty Images

Enska knattspyrnugoðsögnin Kevin Keegan er látin, 75 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein.

Fjölskylda Keegan greindi frá því í janúar að hann hefði greinst með krabbamein á fjórða stigi. Í tilkynningu frá fjölskyldunni kemur fram að hann hafi látist umkringdur eiginkonu sinni og dætrum.

„Það er með gríðarlegri sorg sem við tilkynnum að Kevin Keegan er látinn, 75 ára að aldri. Hann hafði barist við krabbamein og var umkringdur eiginkonu sinni og dætrum á sínum síðustu stundum,“ segir í yfirlýsingunni.

Keegan er talinn einn besti leikmaður enskrar knattspyrnusögu. Hann varð goðsögn hjá Liverpool áður en hann hélt til Hamburg, þar sem hann vann Ballon d'Or-verðlaunin tvö ár í röð, 1978 og 1979.

Á leikmannaferlinum lék hann einnig með Southampton og Newcastle United. Að honum loknum tók hann við þjálfun og stýrði meðal annars enska landsliðinu, Newcastle, Fulham og Manchester City. Hans verður lengi minnst sem eins áhrifamesta knattspyrnumanns Englands.