433

Hin umdeilda klámstjarna þénaði 80 milljónir yfir leiknum í gær

Mynd
Mia Khalifa. Mynd/Instagram

Mia Khalifa vann háa fjárhæð eftir að Spánn lagði Argentínu í úrslitaleik heimsmeistaramótsins.

Khalifa birti færslu á Instagram þar sem hún sýndi frá úrslitaleiknum í New Jersey og veðmál sitt á sigur Spánverja. Samkvæmt myndinni lagði hún eina milljón Bandaríkjadala undir á að Spánn yrði heimsmeistari, á stuðlinum 1,65.

Mynd

Spánn vann leikinn 1-0 eftir framlengingu og fékk Khalifa því 1,65 milljónir dala greiddar til baka. Hagnaður hennar af veðmálinu nam þar með 650 þúsund dölum.

Ferran Torres skoraði eina mark leiksins í framlengingunni og tryggði Spánverjum heimsmeistaratitilinn.

Khalifa, sem er fædd í Líbanon, grínaðist með að Spánn væri heimaríki sitt þrátt fyrir að hún væri ekki af spænskum uppruna. Hún hafði áður lýst yfir stuðningi við það lið sem myndi mæta Argentínu í úrslitaleiknum.