Skoðun fjölmiðlamannsins og samfélagsrýnisins Egils Helgasonar á úrslitaleik HM og framferði Argentínumanna eftir leikinn hefur vakið athygli. Kollegi Egils, Gunnar Smári Egilsson, reiddist og lét mann og annan heyra það sem tók undir með Agli.
Spánn vann Argentínu 1-0 í úrslitaleik HM á sunnudag, yfirburðir Spánverja á vellinum voru miklir. Leikmenn Argentínu voru fastir fyrir og grófir á köflum, hlaut Enzo Fernandez rautt spjald í leiknum og Leandro Parades fékk það rauða eftir leik fyrir að láta hnefana tala.
„Ég held það sé ljóst að Argentína átti aldrei neitt erindi í úrslitaleik HM. Nálguðust verkefnið með sérlega neikvæðum hætti. Hugmyndin væntanlega að reyna að æsa Spánverjana upp - láta hið agaða lið þeirra einhvern veginn missa stjórn á sér. Það gerðu Spánverjarnir ekki heldur voru þeir yfirvegaðir og prúðir allan leikinn - þótt sókn þeirra hefði mátt vera beittari," skrifar Egill í færslu á Facebook.
Egill segir Lionel Messi og félaga hafa fengið létta leið í úrslitaleikinn. „Argentína fékk léttu leiðina í gegnum keppnina, léku gegn Grænhöfðaeyjum, Egyptalandi, Sviss og loks ensku liði - sem hrundi á óskiljanlegan hátt undir lok leiks. Spánn þurfti að eiga við Austurríki, Portúgal, Belgíu og Frakkland í útsláttarkeppninni - mun erfiðari lið. Framganga Argentínu í úrslitaleiknum var til skammar, eins og margir óttuðust að myndi verða. Messi sást lítið meðan liðsfélagar hans puðuðu í vörn og beittu alls kyns lúabrögðum - sem dómarinn kaus að líta framhjá, líklega af ótta við að þurfa að reka fleiri af velli en þennan eina Fernandez.“
Egill rekur svo sögu leiksins frá hans sjónarhorni. „Afleiðingin var leikur sem var lítt fyrir augað, virkaði eins og þungur og strategískur slagur (sem kannski einhverjir hafa smekk fyrir) en hefur varla heillað t.d. bandaríska áhorfendur sem eru lítt verseraðir í launhelgum fótboltans. Steininn tók svo auðvitað úr þegar argentínsku leikmennirnir fóru að lemja á Spánverjunum eftir leikinn - og sneru svo baki í spænska liðið þegar það tók við verðlaununum. Messi er óneintanlega snillingur í fótbolta en hann er óneitanlega í vondum félagsskap. Stundum var eins og honum kæmi framkoma liðsfélaga sinna ekkert við - sem er skrítið, því hann er óskoraður leiðtogi þeirra og átrúnaðargoð. Og svo er spurningin – hví grét Messi svo beisklega í lokin?.“
Gunnar Smári reiddist og las yfir fólki:
Þessi skoðun Egils og fleiri fór ekki vel í skapið á Gunnari Smára, foringja á Samstöðinni.
„Voðalegt pex er þetta. Argentína spilaði 3 af 5 skemmtilegustu leikjum keppninnar (Spánverjar engan skemmtilegan leik). Og hverjum er ekki sama um óvana bandaríska áhorfendur? Þú ættir að horfa á blak," skrifaði Gunnar í hvössum tón.
Egill svaraði Gunnari á þann hátt að svona framkoma í úrslitaleik væri ekki líklegt til þess að fá fólk til að elska fótbolta, sérstaklega þá sem horfa bara á úrslitaleik HM á fjögurra ára fresti. Svarið fór ekki vel í Gunnar Smára sem vildi senda Egil í háttinn.
„Æ, farðu nú að leggja þig. Argentínumenn sprungu á limminu, eins og Frakkar. Hvað með það? Fram að því höfðu þeir fært okkur bestu skemmtun mótsins (og manninn sem átti að vera valinn maður mótsins, hann var bestur, Bellingham næstbestur og Mbappé þriðji bestur. Svo Halland). Og þetta mark sem einhverjir VAR-dómarar tóku af Egyptum kom ekki að sök því þeir skoruðu í þar næstu sókn (sem þeir hefðu líklega ekki gert ef fyrra markið hefði mátt standa). Og hvers vegna að skammast í Argentínumönnum vegna þessa? Hvað áttu þeir að gera? Skora sjálfsmark til að sefa hneykslan þína vegna einhvers VAR-dóms?," skrifaði Gunnar, sem greinilega var mjög ósáttur.
Fyrrum formaður KSÍ blandaði sér í leikinn:
Eggert Magnússon fyrrum formaður KSÍ blandaði sér í leikinn og svaraði Gunnari Smára. „Gunnar Smári, því miður var argentiska landsliðið, sér til mikillar skammar i gær med LEIK eda Óleik, sem var þeim til skammar!," skrifaði Eggert.
„Því miður af því mér er mjog hlítt til Argentinu og því frábæra fólki, sem ég kynntist þar i mánaðardvöl, sem fulltrúi FIFA i U-21 árs HM fyrir morgun ársum! En frakoma liðsins i gær var til Skammar, og a ekkert skilt við fótbolta, því miður!.“
Gunnar Smári virtist til í að halda rökræðum áfram og svaraði Eggert. „Því miður voru Argentínumenn búnir á því og fundu ekki leið gegn Spánverjum, ekki frekar en Frakkar. Nú er að leggjast á bæn og biðja þess að lið finni svar við leik Spánar því ef það tekst ekki mun fótboltinn deyja úr leiðindum. Það truflar mig ekki þótt einn eða tveir leikmenn fari fyrir strikið; hvarflar ekki að mér að fordæma heila þjóð þess vegna og enn síður argentínskan fótbolta," sagði Gunnar Smári.