433

Formlegar viðræður farnar af stað - Chelsea vill kaupa miðvörðinn

Mynd
Getty Images

Chelsea er komið í viðræður við Crystal Palace um kaup á miðverðinum Maxence Lacroix.

Samkvæmt Sky Sports vill Crystal Palace fá meira en 55 milljónir punda fyrir Frakkann, en það er sú upphæð sem Tottenham greiddi Brighton fyrir Jan Paul van Hecke fyrr í sumar.

Samskipti Chelsea og Crystal Palace eru sögð mjög góð og félögin hafa áður átt í viðskiptum, meðal annars vegna Trevoh Chalobah og Ben Chilwell.

Chelsea er í leit að nýjum miðverði og vill fá leikmann sem hefur bæði líkamlega burði og reynslu af ensku úrvalsdeildinni. Lacroix er talinn falla vel að þeim kröfum.

Lundúnafélagið hefur þegar fengið um 130 milljónir punda í kassann með leikmannasölum í sumar og fleiri brottfarir eru sagðar í kortunum. Trevoh Chalobah, Benoit Badiashile, Malo Gusto og Axel Disasi eru allir nefndir sem mögulegir sölukostir áður en félagaskiptaglugganum verður lokað.