433

FIFA hefur rannsókn eftir ofbeldið á sunnudag

Mynd

FIFA hefur ákveðið að hefja rannsókn á atvikunum sem áttu sér stað eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins þar sem Spánn lagði Argentínu að velli og tryggði sér heimsmeistaratitilinn.

Mikil átök brutust út strax eftir lokaflautið þegar leikmenn og starfsfólk liðanna lentu í slagsmálum á vellinum. Leandro Paredes, miðjumaður Argentínu, fékk rautt spjald eftir að hafa gripið Eric Garcia um hálsinn, slegið Gavi í andlitið og ýtt honum í jörðina.

Samkvæmt The Times mun aganefnd FIFA rannsaka brottvísun Paredes sérstaklega, auk þess að fara yfir þátt annarra leikmanna og liðsmanna í átökunum.

Nahuel Molina vakti einnig athygli þegar hann rakst af ásetningi í Rodri, fyrirliða Spánverja, sem varð til þess að leikmenn beggja liða flykktust saman. Þá sást aðstoðarþjálfari Argentínu, Roberto Ayala, slá Dani Olmo í átökunum.

Samkvæmt DAZN Spain kvartaði Nicolas Otamendi einnig við Rodri eftir leik vegna ummæla sem spænski miðjumaðurinn hafði látið falla fyrir úrslitaleikinn um dómgæslu mótsins.

FIFA mun nú fara yfir myndbandsupptökur og skýrslur dómara áður en tekin verður ákvörðun um hvort fleiri agaviðurlög verði lögð á argentínska leikmenn eða þjálfara eftir ófögur lok á úrslitaleiknum.