Cristian Romero vakti athygli eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins þegar hann virtist hunsa Donald Trump við verðlaunaafhendinguna eftir tap Argentínu gegn Spáni.
Trump, forseti Bandaríkjanna, var viðstaddur verðlaunaafhendinguna ásamt Gianni Infantino, forseta FIFA, þar sem silfurverðlaun Argentínumanna og gullverðlaun Spánverja voru afhent.
Cristian Romero airing Trump.
Fair play.
pic.twitter.com/hn1jok7jUR— Out of Context Football Manager (@nocontextfm1) July 19, 2026
Þegar Romero gekk upp á sviðið til að taka á móti silfurverðlaunum sínum tók hann við medalíu sinni en virtist ekki heilsa Trump áður en hann hélt áfram. Atvikið vakti athygli á samfélagsmiðlum skömmu eftir leikslok.
Trump var einnig áberandi þegar Spánverjar tóku á móti heimsmeistarabikarnum. Þrátt fyrir að Infantino virtist gefa honum merki um að víkja af sviðinu stóð forsetinn áfram við hlið spænska liðsins þegar Rodri lyfti bikarnum á loft.
Spánn vann úrslitaleikinn 1-0 eftir framlengingu með marki Ferrans Torres og tryggði sér þar með heimsmeistaratitilinn í annað sinn. Argentína endaði leikinn með tíu menn eftir að Enzo Fernández var rekinn af velli.