433

Arsenal skoðar að fá John Stones vegna meiðsla lykilmanns

Mynd
Getty Images

Arsenal íhugar að semja við enska varnarmanninn John Stones á frjálsri sölu reynist meiðsli William Saliba alvarleg, samkvæmt enskum blöðum.

Saliba, sem er 25 ára, hefur verið einn mikilvægasti leikmaður Arsenal undanfarin ár og lykilmaður í vörn liðsins. Óvissa ríkir hins vegar um hversu lengi Frakkinn verður frá keppni og forráðamenn Lundúnafélagsins eru sagðir skoða mögulega styrkingu.

Stones er 32 ára og hefur mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni og landsliðinu. Hann hefur leikið lengi með Manchester City og unnið fjölda titla, en gæti nú orðið laus án greiðslu félagaskiptagjalds.

Mikel Arteta þekkir Stones vel frá tíma sínum í þjálfarateymi Manchester City og gæti séð hann sem hentuga skammtímalausn.

Arsenal mun þó bíða eftir niðurstöðum frekari rannsókna á Saliba áður en ákvörðun verður tekin. Reynist fjarvera hans löng gæti félagið brugðist hratt við og reynt að tryggja sér Stones.