Nýtt myndskeið úr úrslitaleik heimsmeistaramótsins virðist varpa nýju ljósi á átökin sem brutust út eftir að Spánn lagði Argentínu 1-0 eftir framlengingu.
Á myndbandinu sést hvernig spænsku leikmennirnir hlaupa til að fagna heimsmeistaratitlinum þegar Nahuel Molina virðist slá Rodri í magann. Í kjölfarið snýr spænski fyrirliðinn sér að argentínska varnarmanninum og orðaskipti hefjast á milli þeirra.
Only shot Argentina took today 🥊⚽ pic.twitter.com/TXF6Thf1oR
— The Touchmine | 𝐓 (@TouchmineX) July 20, 2026
Skömmu síðar sauð upp úr þegar argentínsku leikmennirnir létu gremju sína bitna á andstæðingunum. Leandro Paredes réðst meðal annars að Gavi og Eric Garcia eftir lokaflaut dómarans.
Slavko Vinčić, dómari leiksins, brást við með því að sýna Paredes rautt spjald fyrir framkomu sína eftir leikslok.
90 + prórroga dando palos Paredes y ni cuando ha pitado el final ha parado, una sanción ejemplar es lo que merece, mal deportista. pic.twitter.com/TSZWuQVPYg
— Axel Martínez (@AxeeL) July 20, 2026
Alan Shearer gagnrýndi Argentínumenn harðlega í umfjöllun BBC eftir leikinn og sagði hegðun liðsins langt yfir mörkin. Hann taldi líkamlegan leik Argentínu hafa farið úr böndunum og sagði atvikin eftir leikslok setja dökkan svip á úrslitaleikinn.