433

Telja sig vera að kaupa manninn sem United hefur viljað

Mynd
Getty Images

Roma er sífellt bjartsýnna á að ná samkomulagi við West Ham um kaup á hollenska kantmanninum Crysencio Summerville, samkvæmt upplýsingum Sky Sports á Ítalíu.

Rómarfélagið hefur lagt fram tilboð sem er talið vera um 39 milljónir punda, jafnvirði um 46 milljóna evra, og er Summerville sagður jákvæður gagnvart því að flytja til Ítalíu.

Manchester United hefur einnig haft 24 ára kantmanninn á óskalista sínum í sumar, en félagið getur að svo stöddu ekki stigið næstu skref í viðræðum. Ástæðan er sú að United þarf fyrst að selja Marcus Rashford áður en svigrúm skapast til frekari leikmannakaupa.

Summerville hefur vakið athygli með frammistöðu sinni undanfarin ár og er eftirsóttur á félagaskiptamarkaðnum. Eins og staðan er nú virðist Roma vera komið fremst í röðina og gæti félagið gengið frá kaupunum á næstu dögum ef viðræður við West Ham ganga að óskum.