433

Reyna að fylla skarð Digne sem er á förum

Mynd
Getty Images

Aston Villa er í viðræðum við AC Milan um kaup á vinstri bakverðinum Pervis Estupiñán, samkvæmt upplýsingum Sky Sports á Ítalíu. Enn hefur þó ekki náðst samkomulag á milli félaganna.

Estupiñán gekk til liðs við AC Milan síðasta sumar eftir að hafa áður leikið með Brighton á Englandi. Nú gæti hann verið á leið aftur í ensku úrvalsdeildina, þar sem Villa sér hann sem eftirmann Lucas Digne.

Reiknað er með að Digne yfirgefi Aston Villa á næstu dögum og gangi í raðir Paris Saint-Germain. Frakklands- og Evrópumeistararnir hyggjast virkja ákvæði í samningi hans sem nemur um 8,5 milljónum punda, eða um tíu milljónum evra.

Brottför Digne hefur orðið til þess að Villa hefur hraðað leitinni að nýjum vinstri bakverði og Estupiñán er sagður vera efstur á óskalistanum. Takist félögunum að ná samkomulagi gæti Ekvadorinn snúið aftur í ensku úrvalsdeildina áður en félagaskiptaglugganum lýkur.