Chelsea hefur áhuga á franska miðverðinum Maxence Lacroix hjá Crystal Palace og er búist við að áhuginn aukist nú þegar þátttöku hans á HM er lokið, samkvæmt Sky Sports.
Lacroix, sem er 26 ára gamall, er á lista Chelsea yfir mögulega miðverði fyrir komandi tímabil. Engar formlegar viðræður hafa þó enn farið fram á milli félaganna.
Crystal Palace er ekki tilbúið að láta varnarmanninn fara á afsláttarverði. Samkvæmt Sky Sports myndi félagið krefjast hærri upphæðar en þeirra 55 milljóna punda sem Tottenham greiddi Brighton nýverið fyrir Jan Paul van Hecke.
Staða samningamála leikmannanna er ólík. Van Hecke átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum þegar hann var seldur til Tottenham, á meðan Lacroix er samningsbundinn Crystal Palace til sumarsins 2029. Það styrkir samningsstöðu Palace verulega og gerir félaginu kleift að setja hátt verð á franska landsliðsmanninn ef Chelsea ákveður að leggja fram tilboð.